Aðalheiður
- Um Aðalheiði
- Verk
- Ferilskrá
- Greinar
- Sýningar

Arnar
- Um Arnar
- Verk
- Ferilskrá
- Greinar
- Sýningar

Brák
- Um Brák
- Verk
- Ferilskrá
- Greinar
- Sýningar

Jón Laxdal
- Um Jón
- Verk
- Ferilskrá
- Greinar

- Sýningar














 

Aðalheiður S. Eysteinsdóttir fæddist á Siglufirði 23.júní 1963 og bjó þar til 1986, þá fluttist hún til Akureyrar. Hún stundaði nám við Myndlistaskólann á Akureyri 1989-93 og hefur síðan unnið ýmis störf á sviði myndlistar ásamt því að vera athafnasamur myndlistamaður. Árið 2000 hóf Aðalheiður þátttöku í Dieter Roth akademíunni og mun halda þeirri samvinnu áfram.Vinnustofa og heimili Aðalheiðar er í Freyjulundi, 601 Akureyri.
Sími: 462-4981 / 865-5091. adalheidur@freyjulundur.is www.freyjulundur.is


Aðalheiður segir um verkin sín:
Frá upphafi ferils míns hef ég leitast við að endurgera eftirminnileg augnablik úr eigin lífi, persónur eða bæjarbrag. Sett upp mynd af samfélagi manna og dýra í tilraun til að minna okkur á hvaðan við komum og hver við erum. Einskonar brú milli veruleika og ímyndunar í samfélagi sem er of upptekið til að staldra við og njóta.

Þannig varð til ættbálkur blökkufólks sem öll báru liti íslenska fánans. Flokkur manna sem allir versluðu í sömu herrafataverslun í Reykjavík, og annarskonar flokkur álfta sem höfu aðsetur í tjarnarhólmanum á Vetrarhátíð. Hrafnar sem námu land í Amsterdam og ferðafélagarnir Ísbjörn, Hreindýr og Sauður fóru til Lapplands með viðkomu í Reykjavík. Siglfirðingar sem slógu hring um torgið og fluttu það til Seyðisfjarðar, síðan aftur heim og þá á bryggjuna í Bátahúsinu við Síldarminjasafnið. Kettir reygðu sig og teygðu á Safnasafninu eitt sumar en viku fyrir dvergunum sem áðu þar á sérsmiðuðum palli. Gestir kaffi Karólínu horfðust í augu við sjálfa gesti kaffi
Karólínu og listamenn Listasumars ´95 gengu framhjá sjálfumsér í Glugganum í göngugötunni þar sem brúðarfylkingin stormaði í rigningu á vinnustofuna til móts við stöllur sínar. Í BOXI horfði lítil stúlka á sig fullorðna dansa og fullorðin dansaði ég við sýningargesti á afmælisdaginn minn.

Mér finnst gaman að eiga afmæli og héllt veglega upp á það fertugasta með 40 sýningum víða um heim. Ein opnun á dag í 40 daga, allt ólíkar sýningar sem á einn eða annan hátt tengdust daglegu lífi viðkomandi staðar.