|
|
|
Jón sýnir í New York
31. janúar 2012 | Freyjulundur
|
| Freyjulundur ritaði, 31. janúar 2012
klukkan 16:24
|
|
................................................................ |
|
|
Réttardagur á flugstöð
30. janúar 2012 | Freyjulundur

Aðalheiður opnaði 35. sýningu sína í 50 sýningaröð á Keflavíkurflugvelli nú í lok Janúar. Sýningin er sett upp samhliða sýningu hennar 'Á Bóndadag' í Listasafni Reykjanesbæjar. Frekari upplýsingar um verkefnið finnast hér.
|
| Freyjulundur ritaði, 30. janúar 2012
klukkan 23:00
|
|
................................................................ |
|
|
Á Bóndadag
30. janúar 2012 | Freyjulundur

Aðalheiður S. Eysteinsdóttir sýnir í Listasafni Reykjanesbæjar
Föstudaginn 20. jan. kl. 18.00 opnaði Aðalheiður S. Eysteinsdóttir sýninguna " Á Bóndadag " í Listasafni Reykjanesbæjar. Í sýningarskránni segir Aðalsteinn Ingólfsson m.a. : “ Í myndverkum Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur, á sér stað óvenjulegra stefnumót íslenskra og erlendra myndlistarhefða en við höfum áður séð. Annars vegar eru verk hennar íslenskara en allt sem íslenskt er, sprottin beinustu leið upp úr margra alda gamalli tálgu-og tréskurðarhefð meðal þjóðarinnar, í bland við alþýðlega sagnalist af kynlegum kvistum eins og þeim sem birtast ljóslifandi í skáldsögum Jóns Thoroddsen. Á hinn bóginn sækir Aðalheiður vinnubrögð sín til myndlistarmanna beggja vegna Atlantsála sem meðvitað og ómeðvitað ögruðu hámenningarlegum viðhorfum neysluþjóðfélagsins með endurvinnslu úrgangs af ýmsu tagi, upp í hugann koma Merz-hús dadaistans Kurts Schwitters, jafnvel einnig umhverfisverk einfaranna Fernands Cheval í Lyon og Simons Rodia í Los Angeles.“
Sýningin er liður í verkefninu Réttardagur- 50 sýninga röð og er sú 34. í röðinni. Stefnt er að því að setja upp 50 sýningar á tímabilinu júní 2008 til júní 2013 sem allar fjalla á einn eða annan hátt um sauðkindina og þá menningu sem skapast út frá henni. Nú þegar hafa sýningarnar ratað í flesta landshluta auk Hollands, Þýskalands og Bretlands. Verkefnið vinnur Aðalheiður yfirleitt í samstarfi við heimamenn og aðra listamenn á hverjum stað fyrir sig.
Að þessu sinni taka 11 listamenn auk Aðalheiðar, þátt í því að gera Þorrablótsstemmningu á Bóndaginn í Reykjanesbæ. Gestalistamennirnir eru tvíeikið Ar-Se, Arnar Ómarsson og Sean Millington sem skapa rýmið fyrir viðburðinn, Guðbrandur Siglaugsson gerir textaverk, Gunnhildur Helgadóttir gerir borðbúnað, Jón Laxdal gerir fylgihluti, Nikolaj Lorentz Mentze gerir hljóðfæri og hljómsveitin Hjálmar verður með uppákomu við opnun. Á opnuninni flytur Aðalheiður dansverk og boðið verður upp á veitingar að þjóðlegum sið.
Listasafn Reykjanesbæjar hefur í nokkur ár staðið fyrir kynningu á íslenskri myndlist í Leifsstöð á Keflavíkurflugvelli. Í næstu viku verður hægt að sjá þar skúlptúra eftir Aðalheiði undir heitinu „Ferðalangar“ og telst það 35.sýningin í Réttardagsverkefninu.
Listasafn Reykjanesbæjar er opið alla daga 12.00-17.00 og um helgar 13.00-17.00, aðgangur er ókeypis. Sýningin stendur til 18. mars.
Aðalheiður í síma 8655091
|
| Freyjulundur ritaði, 30. janúar 2012
klukkan 20:13
|
|
................................................................ |
|
|
Alþýðuhúsið á Siglufirði.
10. desember 2011 | Freyjulundur

Þann 6. desember 2011 skrifaði Aðalheiður S. Eysteinsdóttir undir kaupsamning um Alþýðuhúsið á Siglufirði.
Viðtal í Vikudegi á Akureyri 8.des. 2011.
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir listamaður í Freyjulundi er um þessar mundir að hefja endurbætur á gamla Alþýðuhúsinu á Siglufirði og stefnir að því að gera húsið að vinnustofu og menningarsetri. Húsið er 300 fermetrar að stærð og stendur í hjarta bæjarins, rétt norðan við torgið. Fjallabyggð og AFL SparisjóðurSiglufjarðar lögðu verkefninu lið. „Ég er afar þakklát þeim sem tóku vel á móti mér með þessa hugmynd,“ segir hún. „Framtíðarhugmyndir varðandi húsið er að lána það tímabundið lista- og fræðimönnum með því skilyrði að þeir leggji sitt af mörkum til samfélagsins, eins er ætlunin að standa fyrir skipulögðum menningarviðburðum einu sinni í mánuði auk þess sem myndlistasýningar verða í litlu rými í miðju hússins,“ segir Aðalheiður. Hún hyggst flytja hluta af starfsemi sinni í Alþýðuhúsið, gera þar skúlptúrgarð sunnan við húsið, setja upp listasmiðjur og taka á móti gestum líkt og hún hefur gert í Eyjafirði undanfarin 20 ár. Þá segir Aðalheiður að hún muni standa fyrir víðtækri menningarstarsemi í Alþýðuhúsinu með áherslu á myndlist, menningardegi barna ár hvert og fjölþjóðlegri hugmynda og listastefnu. „Menningarumhverfið á Siglufirði er í mikilli sókn,“ segir hún og bendir m.a. á Síldarminjasafnið, Rauðku, Þjóðlagasetrið og ýmis smærri söfn og menningarfélög. „Þetta er í þriðja sinn sem ég legg af stað í menningaruppbyggingu af þessu tagi, fyrst með virkri uppbyggingu listagilsins á Akureyri, þá Verksmiðjunnar á Hjalteyri og nú í Alþýðuhúsiinu á Siglufirði,“ segir Aðalheiður, en hún er fædd og uppalin þar í bær, flutti þaðan 23 ára gömul og hélt til náms. Leiðin lá í Myndlistaskólann á Akureyri og síðar tók hún þátt í Dieter Roth akademíunni, sem er óhefðbundin akademía. Aðalheiður hefur starfað að myndlist í 18 ár og á þeim tíma lagt gjörva hönd á margt, starfrækt gallerý, staðið fyrir menningarviðburðum, sýnt verk sín í 14 löndum, kennt myndlist á öllum skólastigum, haldið námskeið og fyrirlestra og starfað með listamönnum úr ólíkum listgreinum. Síðastliðin ár hefur Aðalheiður búið og starfað í Freyjulundi, norðan Akureyrar, þar sem áður var félagsheimili Arnarneshrepps, en þar sameinaði hún heimili og vinnustofu í sveitasælunni. „Ég hef eingöngu unnið að myndlist undanfarin ár og m.a. hlotið starfslaun frá ríki og Akureyrarbæ, sem og menningarstyrki ýmis konar. Nú um nokkurt skeið hef ég verið að svipast um eftir húsnæði á Siglufirði, sem hentaði fyrir vinnustofu og menningarstarfsemi og eftir að hin dásamlegu Héðinsfjarðargöng urðu að veruleika opnaðist möguleiki á að vera þar með annan fótinn, starfa bæði í Freyjulundi og Siglufirði,“ segir Aðalheiður.




|
| Freyjulundur ritaði, 10. desember 2011
klukkan 07:38
|
|
................................................................ |
|
|
Arnar í Árósum
29. nóvember 2011 | Freyjulundur
Arnar hefur síðastliðna tvo mánuði verið gestalistamaður á Institut for (X) í Árósum, en lista og hönnunarhópurinn Bureau Detours stendur fyrir listabúsetu Arnars. Uppgjör verunar tekur á sig mynd í aðalsal hópsins í febrúar 2012 en Arnar mun taka yfir salinn með innsetningum, texta-, mynd- og videoverkum og öðru sem gæti orðið.
Hann hefur tekið við ákveðnu lista prógrammi fyrir hópinn og mun starfa þar áfram næstu mánuði.
www.arnaromarsson.com
|
| Freyjulundur ritaði, 29. nóvember 2011
klukkan 23:30
|
|
................................................................ |
|
|
Aðventa í Freyjulundi
23. nóvember 2011 | Freyjulundur
|
| Freyjulundur ritaði, 23. nóvember 2011
klukkan 11:44
|
|
................................................................ |
|
|
Opið hús
3. nóvember 2011 | Freyjulundur
Samband íslenskra myndlistarmanna heldur upp á Dag Myndlistar - opnar vinnustofur laugardaginn 05. nóvember 2011.
Myndlistarmenn á víð og dreif um landið opna vinnustofur sínar og bjóða almenning velkomin í heimsókn milli klukkan 14:00 og 17:00. Athugið þó að þessi tími er þó ekki algildur og sumar vinnustofur opna fyrr eða kl 13:00.
Allar upplýsingar eru að finna á vefsíðunni www.dagurmyndlistar.is, en á henni er að finna lista yfir allar opnar vinnustofur, kort og kynningarmyndbönd um starf myndlistarmannsins.
Vinnustofurnar eru í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Keflavík, Akureyri og Eyjafjarðarbyggð, Seyðisfirði og Ísafirði. Einnig er íslenskur listamaður búsettur í Bandaríkjunum með opna vinnustofu.
Opnar vinnustofur listamanna árlega út um allt land gefa almenningi kost á að skoða vinnuaðstöðu og verk, spjalla beint við listamenn og fræðast um starfið. Þannig gefum við listamönnum einnig færi á því að kynna starf sitt fyrir almenningi, veita einstaka upplifun og víkka sýn þeirra á myndlist og vinnunni sem fer fram bak við tjöldin.
5. nóvember, næstkomandi laugardag mun Freyjulundur opna dyr sýnar gestum og gangandi frá 13:00 til 17:00.( ath. röng tímasetning í dagskránni ) Jón og Aðalheiður munu vera til taks og með heitt á könnunni. Allir velkomnir í Freyjulund!

|
| Freyjulundur ritaði, 3. nóvember 2011
klukkan 08:26
|
|
................................................................ |
|
|
Ný verk.
17. október 2011 | Freyjulundur
NÝ VERK Myndlistarsýning Jóns Laxdal 22.-23. október
Laugardaginn 22. október kl. 14.00 opnar Jón Laxdal myndlistarsýninguna Ný verk í Populus tremula.
Sýningin er einnig opin sunnudaginn 23. október kl. 14.00-17.00. Aðeins þessi eina helgi.
|
| Freyjulundur ritaði, 17. október 2011
klukkan 12:54
|
|
................................................................ |
|
|
Jón Laxdal sýnir í Berlín
7. október 2011 | Freyjulundur
Laugardaginn 15. okt. 2011 opnar sýning í Kuckei + Kuckei, Linienstrasse 158 , 10115 Berlin sem Jón Laxdal tekur þátt í. Sýningarstjóri er Hlynur Hallsson.
 Verk eftir Knut Eckstein, Jón Laxdal Halldórsson, Jóna Hlíf Halldórsdóttir
 Verk eftir Birgir Andrésson, Kristján Gudmundsson
TEXT
„(Lat. textum: tissue, assemblage) decribes a definite, cohesive expression in written language by extension also the non-written, but possibly writable language information”
Iceland is a nation of literature. It´s reputation as a Nation of literature has been internationally established ever since Reykjavik has being named „City of Literature“ from the UNESCO this summer. Based on the heritage of medieval literature consisting of the Sagas, the Edda or the Icelander Book this tradition reaches on into present days. The most published books per citizen prove the importance of the written word for Iceland and it´s culture. This peaks in Iceland being the guest of honor at this years Frankfurt Book Fair. The preservation, prevalence and impartation of literature became the great passion of the Icelanders. The logical chain leads to texts and references to literature being used in the works of icelandic artists. But also we discover these references in works of artists who are united by their affinity for icelandic culture. The show TEXT curated by Hlynur Hallsson holds 19 icelandic and international artists who seek involvement with texts in their works. „Text“ as vehicle gets displayed in various ways. Sometimes with astonishing honesty, sometimes naive and playful, sometimes in a poetic way, sometimes from a documentary point of view, sometimes even concealed or right in your face. For instance the references to literature to be found in the work by Roni Horn and Kristján Guðmundsson are directly tied to the theme but there are also works in the show which have a more conceptual to concrete orientation. What unites the works of the show is the utilization of texts as golden thread.
Artists: Birgir Andrésson (1955-2007), Dieter Roth (1930-1998), Guðný Rósa Ingimarsdóttir (*1969), Haraldur Jónsson (*1961), Hlynur Hallsson (*1968), Hreinn Friðfinnsson (*1943), Jóna Hlíf Halldórsdóttir (*1978), Jón Laxdal Halldórsson (*1950), Karin Sander (*1957), Karlotta Blöndal (*1973), Knut Eckstein (*1968), Kristján Guðmundsson (*1941), Lawrence Weiner (*1942), Libia Castro / Ólafur Ólafsson (*1970 / *1973), Margrét H. Blöndal (*1970), Roni Horn (*1955), Sigurður Guðmundsson (*1942) und Unnar Örn Auðarson (*1974)
The exhibition „Text“ is to be shown in a various form at the National Gallery of Iceland in January 2012. With the friendly assistance of i8 Gallery, The Living Art Museum and the National Gallery of Iceland, Reykjavik.
|
| Freyjulundur ritaði, 7. október 2011
klukkan 18:26
|
|
................................................................ |
|
|
| |