Alþýðuhúsið á Siglufirði.
10.12.2011 | Freyjulundur
Þann 6. desember 2011 skrifaði Aðalheiður S. Eysteinsdóttir undir kaupsamning um Alþýðuhúsið á Siglufirði.
Viðtal í Vikudegi á Akureyri 8.des. 2011.
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir listamaður í Freyjulundi er um þessar mundir að hefja endurbætur á gamla Alþýðuhúsinu á Siglufirði og stefnir að því að gera húsið að vinnustofu og menningarsetri. Húsið er 300 fermetrar að stærð og stendur í hjarta bæjarins, rétt norðan við torgið. Fjallabyggð og AFL SparisjóðurSiglufjarðar lögðu verkefninu lið. „Ég er afar þakklát þeim sem tóku vel á móti mér með þessa hugmynd,“ segir hún. „Framtíðarhugmyndir varðandi húsið er að lána það tímabundið lista- og fræðimönnum með því skilyrði að þeir leggji sitt af mörkum til samfélagsins, eins er ætlunin að standa fyrir skipulögðum menningarviðburðum einu sinni í mánuði auk þess sem myndlistasýningar verða í litlu rými í miðju hússins,“ segir Aðalheiður. Hún hyggst flytja hluta af starfsemi sinni í Alþýðuhúsið, gera þar skúlptúrgarð sunnan við húsið, setja upp listasmiðjur og taka á móti gestum líkt og hún hefur gert í Eyjafirði undanfarin 20 ár. Þá segir Aðalheiður að hún muni standa fyrir víðtækri menningarstarsemi í Alþýðuhúsinu með áherslu á myndlist, menningardegi barna ár hvert og fjölþjóðlegri hugmynda og listastefnu. „Menningarumhverfið á Siglufirði er í mikilli sókn,“ segir hún og bendir m.a. á Síldarminjasafnið, Rauðku, Þjóðlagasetrið og ýmis smærri söfn og menningarfélög. „Þetta er í þriðja sinn sem ég legg af stað í menningaruppbyggingu af þessu tagi, fyrst með virkri uppbyggingu listagilsins á Akureyri, þá Verksmiðjunnar á Hjalteyri og nú í Alþýðuhúsiinu á Siglufirði,“ segir Aðalheiður, en hún er fædd og uppalin þar í bær, flutti þaðan 23 ára gömul og hélt til náms. Leiðin lá í Myndlistaskólann á Akureyri og síðar tók hún þátt í Dieter Roth akademíunni, sem er óhefðbundin akademía. Aðalheiður hefur starfað að myndlist í 18 ár og á þeim tíma lagt gjörva hönd á margt, starfrækt gallerý, staðið fyrir menningarviðburðum, sýnt verk sín í 14 löndum, kennt myndlist á öllum skólastigum, haldið námskeið og fyrirlestra og starfað með listamönnum úr ólíkum listgreinum. Síðastliðin ár hefur Aðalheiður búið og starfað í Freyjulundi, norðan Akureyrar, þar sem áður var félagsheimili Arnarneshrepps, en þar sameinaði hún heimili og vinnustofu í sveitasælunni. „Ég hef eingöngu unnið að myndlist undanfarin ár og m.a. hlotið starfslaun frá ríki og Akureyrarbæ, sem og menningarstyrki ýmis konar. Nú um nokkurt skeið hef ég verið að svipast um eftir húsnæði á Siglufirði, sem hentaði fyrir vinnustofu og menningarstarfsemi og eftir að hin dásamlegu Héðinsfjarðargöng urðu að veruleika opnaðist möguleiki á að vera þar með annan fótinn, starfa bæði í Freyjulundi og Siglufirði,“ segir Aðalheiður.
Arnar í Árósum
29.11.2011 | Freyjulundur
Arnar hefur síðastliðna tvo mánuði verið gestalistamaður á Institut for (X) í Árósum, en lista og hönnunarhópurinn Bureau Detours stendur fyrir listabúsetu Arnars. Uppgjör verunar tekur á sig mynd í aðalsal hópsins í febrúar 2012 en Arnar mun taka yfir salinn með innsetningum, texta-, mynd- og videoverkum og öðru sem gæti orðið.
Hann hefur tekið við ákveðnu lista prógrammi fyrir hópinn og mun starfa þar áfram næstu mánuði.
Opið hús
03.11.2011 | Freyjulundur
Samband íslenskra myndlistarmanna heldur upp á Dag Myndlistar - opnar vinnustofur laugardaginn 05. nóvember 2011.
Myndlistarmenn á víð og dreif um landið opna vinnustofur sínar og bjóða almenning velkomin í heimsókn milli klukkan 14:00 og 17:00. Athugið þó að þessi tími er þó ekki algildur og sumar vinnustofur opna fyrr eða kl 13:00.
Allar upplýsingar eru að finna á vefsíðunni www.dagurmyndlistar.is, en á henni er að finna lista yfir allar opnar vinnustofur, kort og kynningarmyndbönd um starf myndlistarmannsins.
Vinnustofurnar eru í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Keflavík, Akureyri og Eyjafjarðarbyggð, Seyðisfirði og Ísafirði. Einnig er íslenskur listamaður búsettur í Bandaríkjunum með opna vinnustofu.
Opnar vinnustofur listamanna árlega út um allt land gefa almenningi kost á að skoða vinnuaðstöðu og verk, spjalla beint við listamenn og fræðast um starfið. Þannig gefum við listamönnum einnig færi á því að kynna starf sitt fyrir almenningi, veita einstaka upplifun og víkka sýn þeirra á myndlist og vinnunni sem fer fram bak við tjöldin.
5. nóvember, næstkomandi laugardag mun Freyjulundur opna dyr sýnar gestum og gangandi frá 13:00 til 17:00.( ath. röng tímasetning í dagskránni ) Jón og Aðalheiður munu vera til taks og með heitt á könnunni. Allir velkomnir í Freyjulund!
Jón Laxdal sýnir í Berlín
07.10.2011 | Freyjulundur
Laugardaginn 15. okt. 2011 opnar sýning í Kuckei + Kuckei, Linienstrasse 158 , 10115 Berlin sem Jón Laxdal tekur þátt í. Sýningarstjóri er Hlynur Hallsson.
Verk eftir Knut Eckstein, Jón Laxdal Halldórsson, Jóna Hlíf Halldórsdóttir
Verk eftir Birgir Andrésson, Kristján Gudmundsson
TEXT
„(Lat. textum: tissue, assemblage) decribes a definite, cohesive expression in written language by extension also the non-written, but possibly writable language information”
Iceland is a nation of literature. It´s reputation as a Nation of literature has been internationally established ever since Reykjavik has being named „City of Literature“ from the UNESCO this summer. Based on the heritage of medieval literature consisting of the Sagas, the Edda or the Icelander Book this tradition reaches on into present days. The most published books per citizen prove the importance of the written word for Iceland and it´s culture. This peaks in Iceland being the guest of honor at this years Frankfurt Book Fair. The preservation, prevalence and impartation of literature became the great passion of the Icelanders. The logical chain leads to texts and references to literature being used in the works of icelandic artists. But also we discover these references in works of artists who are united by their affinity for icelandic culture. The show TEXT curated by Hlynur Hallsson holds 19 icelandic and international artists who seek involvement with texts in their works. „Text“ as vehicle gets displayed in various ways. Sometimes with astonishing honesty, sometimes naive and playful, sometimes in a poetic way, sometimes from a documentary point of view, sometimes even concealed or right in your face. For instance the references to literature to be found in the work by Roni Horn and Kristján Guðmundsson are directly tied to the theme but there are also works in the show which have a more conceptual to concrete orientation. What unites the works of the show is the utilization of texts as golden thread.
Artists: Birgir Andrésson (1955-2007), Dieter Roth (1930-1998), Guðný Rósa Ingimarsdóttir (*1969), Haraldur Jónsson (*1961), Hlynur Hallsson (*1968), Hreinn Friðfinnsson (*1943), Jóna Hlíf Halldórsdóttir (*1978), Jón Laxdal Halldórsson (*1950), Karin Sander (*1957), Karlotta Blöndal (*1973), Knut Eckstein (*1968), Kristján Guðmundsson (*1941), Lawrence Weiner (*1942), Libia Castro / Ólafur Ólafsson (*1970 / *1973), Margrét H. Blöndal (*1970), Roni Horn (*1955), Sigurður Guðmundsson (*1942) und Unnar Örn Auðarson (*1974)
The exhibition „Text“ is to be shown in a various form at the National Gallery of Iceland in January 2012. With the friendly assistance of i8 Gallery, The Living Art Museum and the National Gallery of Iceland, Reykjavik.
Design festival og Deptford X listahátíð
20.09.2011 | Freyjulundur
Arnar hefur unnið með Sean Millington í tvö ár og undanfarið undir nafninu Ar-Se. Nú í vikunni taka þeir þátt í London Design Festival með verkinu Walls sem þeir unni fyrr á árinu en varð til við niðurrif á fyrri innsetningu. Auk þess fengu þeir Deptford X listaverðlaunin og opna verkið Surrender to the pleasure næstkomandi föstudag sem part af Deptford X listahátíðinni í London.
Mynd; Úr serínnu Walls
Ar-Se exhibit Walls as part of London Design Festival.
The walls series consists of a twenty piece that individually capture the aftermath of a previous work, Homeland. They deconstructed the whole Homeland structure into smaller portions as an abstract fractal, using wooden pallets that originally had been the supporting structure to Homeland transformed into the canvases of the walls series. Each piece a relic of a living social space that weathered and grew organically for nine months in the south London car park. Enriched with the accumulation of exquisite detail, the pieces elude the unity and enter the entity. With greater focus on the aesthetic quality of the singular piece acutely offers the placement of the object that resolves the socio-political interests of Homeland.
Aðalheiður og Arnar sýna á Húsavík
30.08.2011 | Freyjulundur
Réttardagur 50 sýninga röð
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir og Arnar Ómarsson sýna í Safnahúsinu á Húsavík, 2. sept. - 31. okt. 2011
Sýningin opnar föstudaginn 2. sept. kl. 17.00 og stendur til 31. okt. Sýningin verður opin sunnudaginn 4. sept. kl.13.00 - 16.00 annars er Safnahúsið á Húsavík opið virka daga kl.10.00 - 16.00. Athugið að það er aðeins klukkustundar akstur frá Akureyri til Húsavíkur.
“Að kvöldi réttardags” er 32. sýningin í 50 sýninga röð á verkum Aðalheiðar. Sýningarnar verða settar upp víða um heim á tímabilinu júní 2008 til júní 2013 undir yfirskriftinni "Réttardagur 50 sýninga röð". Tímabilið er á milli fjörutíu og fimm ára og fimmtugs afmælis listakonunnar en tilefnið er sá siður Aðalheiðar að standa fyrir sýningum á skemmtilegum tímamótum. Útgangspunktur sýninganna er dagurinn þegar fé er safnað af fjalli, upphaf nýs tímabils, menning og alsnægtir.
Aðalheiður dregur í verkum sínum upp mynd af samfélagi í tilraun til að minna okkur á hvaðan við komum og hver við erum. Sjálf segist hún leitast við að endurgera eftirminnileg augnablik úr eigin lífi en ýmsar mannlífsmyndir hafa alla tíð verið viðfangsefni hennar. Verkin eru einskonar brú milli veruleika og ímyndunar í samfélagi sem er of upptekið til að staldra við og njóta.
Í Safnahúsinu á Húsavík fjallar listakonan um kyrðina sem leggst yfir þegar féð bíður örlaga sinna, og bændur varpa mæðunni eftir göngur og smölun.
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir fæddist á Siglufirði 23.júní 1963 og bjó þar til 1986, þá fluttist hún til Akureyrar. Hún stundaði nám við Myndlistaskólann á Akureyri 1989-93 og hefur síðan unnið ýmis störf á sviði myndlistar ásamt því að vera athafnasamur myndlistamaður. Árið 2000 hóf Aðalheiður þátttöku í Dieter Roth akademíunni og mun halda þeirri samvinnu áfram.Vinnustofa og heimili Aðalheiðar er í Freyjulundi, 601 Akureyri. ?Sími: 462-4981 / 865-5091. adalheidur@freyjulundur.is www.freyjulundur.is? Verk Aðalheiðar eru skúlptúrar og lágmyndir unnar úr timbri og fundnum hlutum. Listakonan raðar saman timburbútum svo úr verða lifandi manneskjur, dýr og hlutir sem tengjast aðstæðum hverju sinni. Þrátt fyrir að efniviðurinn sé oft óheflað afgangstimbur og yfirbragð verkanna grófgert hvílir yfir þeim fínleiki, næmni og hlýja. Henni tekst að gæða efnivið, sem sumir myndu kalla rusl, lífi og heilla áhorfendur með hrífandi verkum. Aðalheiður vinnur gjarnan að list sinni í samstarfi við aðra listamenn, og að þessu sinni Arnar Ómarsson.
Arnar Ómarsson lauk Bachelor gráðu við Listaháskólann í Lundúnum nú í vor og hefur verið búsettur þar síðastliðin þrjú ár. Hann hefur tekið þátt í fjölda sýninga þar ytra og einnig í Danmörku, hér á Íslandi og Þýskalandi. Arnar heldur úti síðunni www.arnaromarsson.com.